Anna Ósk
Anna Ósk
They say I´m crazy.. I really don´t care ;)
fimmtudagur, apríl 27, 2006


Fallegust




Stoltir foreldrar
Það er komin lítil dama :)

Já það fæddist lítil stelpa í gærkvöldi kl:22:47 14 merkur og 49,5 cm. Fórum uppeftir í gærkvöldi.. og VÁ hvað hún er falleg.. Nína og Sigurbjörn stóðu sig eins og hetjur !! Set inn myndir seinna í dag.

Til hamingju með litlu prinsessuna Nína og Sigurbjörn.. kossar og knús !!
miðvikudagur, apríl 26, 2006
Nína sys búin að missa vatnið... litla krílið kemum vonandi í kvöld eða nótt... ég get ekki beðið... hlakka svoa til :)
þriðjudagur, apríl 25, 2006
"""""""""""""""""""""""""""""""""""""""""""""""""""""""""""""
Kæra dagbók..

Í dag var góður dagur.. var að dúlla mér í Kef með öllu uppáhaldsfólkinu mínu.. er hætt að vera svona ringluð og er farin að geta teiknað meira er bara hringi !! Fórum allar saman á Duus og þótti mér mjög vænt um það.. takk fyrir að vera svona góðar við mig kæru vinkonur !! Brosti meira í dag en alla síðustu viku.

Kveðja Amma rúnntur
"""""""""""""""""""""""""""""""""""""""""""""""""""""""""""""
sunnudagur, apríl 23, 2006
Jæja er ekki kominn tími á smá blogg ??

Páskarnir búnir og sumarið víst komið :) GLEÐILEGT SUMAR :)

Páskarnir voru teknir með trompi.. á föstudeginum hittumst við (HERTZ-gengið) heima hjá Matta og Evu.. svo var farið niður í bæ.. fórum á Hressó.. dont know why.. Ólíver og svo á Hverfis :) Mjög skemmtilegt kvöld

Á laugardeginum kom Ingibjörg Ósk heim frá Köben og því var slegið upp "teiti" í Skipholtinu :) Ég, Sandra og Ibba skemmtum okkur konunglega.. fórum svo niður í bæ.. eitthvað var fátt í bænum.. kíktum á Ólíver og Sólon.. hitti Hjöddu mína.. rosa gaman.. tekið fullt af myndum :)

Á sunnudeginum skelltum við (Anna, Inga, Sandra, Alda og Ibba) upp í bústað þar sem við höfðum það voða kósí.. fórum í pottinn.. grilluðum.. og svo var auðvitað hlegið fyrir allan peninginn !! :)

Þessi helgi fór nú bara í svefn og work.. ekkert mjög spennó !! En er alveg að komast í frí og svo er það bara stutt vinnuvika :) jibbí ;)

En allavega.. fullt af nújum MYNDUM
miðvikudagur, apríl 12, 2006
Jey páskarnir eru að koma...

Var að vinna alla síðustu helgi þannig að hún var frekar róleg.. Fór bara snemma í háttinn á föstudaginn og var spræk í vinnunni á lau.. á lau kvöldið var svo aðeins kíkt á rúnntinn.. miðbærinn var troðinn af fólki.. sumir skrautlegri en aðrir :) sá líka smá eltingaleik.. löggan að elta einhvern mótorhjóladúdda :) Sunnudagurinn var ekkert rosalega spennndi vegna þreytu.. en það lagaðist allt saman þegar allar (nema 1) queenz-skvísurnar komu í saumó til mín.. ekkert smá gaman að hitta þær allar :) Borðað og slúðrað fram eftir kvöldi !!

Svo er það bara búið að vera tjill í fríinu mínu.. er reyndar byrjuð aftur í ræktinni.. nú á sko að segja BLESS við kútinn :D Svo er það bara bingó í mosó í kvöld.. vinna á morgun og svo PÁSKAFRÍ.. eða meira svona helgarfrí +1 :) Ingibjörg Ósk kemur á laugardaginn og ætlum við og Sandra sys að gera okkur glaðan dag :) Hlakka til að fá þig skvís.. svo á sunudaginn verður brunað upp í bústað þar sem við skísurnar ætlum að hafa það kósy :)

Jæja vinnan kallar..
miðvikudagur, apríl 05, 2006
Jæja þá er maður loksins orðinn frískur !! Alveg kominn tími á það.. var að keyra í fyrsta skipti síðan á fimmtudag.. fór í brjóstahaldara í annað sinn síðan á föstudag.. hehehe... já ég er ekkert voðalega smart þegar ég er veik.. í náttbuxum.. hlýrabol.. ekki má gleyma ullarsokkunum.. og með hárið allt út í loftið :) Mamma sagði að ég væri eins og ALF :) Huggó :)

En nú er sko allt annað að sjá kjelluna.. var nebbla að koma úr litun og klippingu hjá henni Kollu minni.. hún er náttla ekkert annað en snillingur :) "gleðilegt nýtt hár"

Annars er nú ekki mikið að frétta.. kíkti aðeins með Jónu og Rósa jr. í dag.. hann er mesta krútt í hiemi !! Kíktum í nokkrar búðir.. sá ekkert spennó !! Svo á morgun er maður að fara að passa litla guttann.. ohh hvað mig hlakkar til :)

Svo er það bara work alla næstu helgi.. liggur við að ég sé komin með fráhvarfseinkenni frá fólkinu mínu þar :)

En jæja er farin að gera eitthvað skemmtó..
sunnudagur, apríl 02, 2006
Heilsubælið Heiðarbrún 5 :)

já Annan er lasin, pabbinn er slappur og Sandran er þunn :) Einstaklega fín familía !!

Búin að vera ótrúlega löt að blogga..

París var náttla bara snilld.. fengum Saga-Class sæti á leiðinni út.. lentum í ágætis veðri.. kíktum í búðir.. svo var tekið sig til fyrir dinnerinn mikla.. rúta.. SVAKA flottur staður.. nóg að borða.. enn meira að drekka :) kvöldið fór reyndar í smá rugl þar sem enginn vissi hvert átti að handa eftir matinn !! En samt sem áður var þetta rosa flott kvöld :)

Laugardagurinn fór í skoðunarferð a la Kris.. hann var eins og þaulvanur guide þarna.. fórum að Effeil-turninum.. að Hvítu kirkjunni.. í listamannahverfið.. í klámhverfið.. að Sigurboganum.. að nýja boganum.. og svo bara heim á hótel og svo var það ítalskur dinner.. kíktum í nokkra kokteila en samt bara rólegt :) svo var haldið heim á mán :)

Snilldarferð.. TAKK allir :)

Svo núna er maður bara búinn að eyða helgarfríinu í laserí og kúr í kef hjá m&p :s Ekkert mjög spennó.. kíkti reyndar með familíunni í fermingu til Jónu frænku áðan.. voða gaman og mjög gott að borða :)

en bið að heilsa úr heilsubælinu..